Hlutverk Sjálfsbjargar er að vinna að fullkominni þátttöku og jafnrétti hreyfihamlaðs fólks á Íslandi og eftir atvikum annarra fatlaðra og gæta réttinda og hagsmuna þess.
Við veitum fötluðu fólki, aðstandendum, fyrirtækjum og þjónustuaðilum hlutlausar upplýsingar á jafningjagrundvelli.
Sérstaklega skal unnið að því að tryggja hreyfihömluðum félagsmönnum sem öðrum aðgengi að mannvirkjum, umhverfi, menntun, atvinnu og upplýsingum.
Get bonus ≡ Gifts Casino Log In Q&A ☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆ 4.0/51.393 votes Spinaway Canada Play Fast…
Sveitarfélög veita lögbundna þjónustu en Sjálfsbjörg býður upp á lögfræði-, sálfræði- og fjármála ráðgjöf til handa félagsmönnum sínum.

Sjálfsbjörg býður félögum sínum frí stuðningsviðtöl

Markmiðið er að tryggja mannréttindi fatlaðra

Stefnumálin miða ölll að því að bæta aðstöðu og lífskjör fatlaðra

Kjarkur eru fullkomin aðstaða til endurhæfingar og líkamsræktar

Tengir þig við þjónustu félagsins og veitir upplýsingar

Markmiðið er að ná yfir sem flesta málaflokka sem varða fatlaða
Við leigjum hjálpartæki sem aðstoða þig við daglegt líf eftir slys eða aðgerð eða annað tilfallandi.
Einnig seljum við fullt af frábærum vörum.
Gott aðgengi er lykillinn að því að hreyfihamlað fólk geti verið fullgildir þátttakendur í samfélaginu.
Öll alhliða þjónusta við hreyfihamlaða, endurhæfing, sálfræðiþjónusta og félagsstarf. Smelltu hér til að sjá meira um þjónustu
NPA (Notendastýrð persónuleg aðstoð) er þjónusta fyrir fatlað fólk þar sem einstaklingurinn sjálfur stjórnar sinni aðstoð. Hann ræður aðstoðarfólk, skipuleggur þjónustuna og ákveður hvernig hún er veitt.
Markmiðið er meira sjálfstæði, aukin lífsgæði og betri stjórn á eigin daglegu lífi.
Þú getur fengið upplýsingar um fjölbreytt félagsstarf hjá Sjálfsbjörgu. Hafðu samband við okkur til að vita meira.
Já, Sjálfsbjörg býður upp á fjölbreytt námskeiðahald. Til dæmis er nú í febrúar boðið upp á námskeið tengt andlegri líðan.
Sjálfsbjörg veitir námsstyrki til fatlaðs fólks eða einstaklinga með skerta starfsgetu til að styðja nám, endurhæfingu og símenntun.
Bílastyrkur fyrir hreyfihamlaða á Íslandi er fyrst og fremst greiddur af Tryggingastofnun og á að hjálpa fólki sem á erfitt með að komast leiðar sinnar án bíls. Ef hreyfihömlun er viðurkennd og bíll telst nauðsynlegur fyrir daglegt líf, vinnu eða heilsu er hægt að fá styrk til bílakaupa, yfirleitt á nokkurra ára fresti. Sumir fá líka uppbót með rekstri bíls, sérstaklega ef viðkomandi er á örorku eða lífeyri. Ef þarf sérútbúinn bíl, til dæmis vegna hjólastóls, getur styrkurinn orðið hærri. Þetta er þó sjaldnast full fjármögnun heldur stuðningur sem á að gera bílaeign raunhæfari.